ATVIK
ATVIK er sannreynt, miðlægt atvikaskráningarkerfi sem einfaldar skráningu atvika og bætir yfirsýn í öryggisstjórnun fyrirtækja. Með gagnvirku mælaborði og öflugu greiningartóli fá stjórnendur skýra mynd af tækifærum til úrbóta, sem stuðla að öruggara vinnuumhverfi.
Umsagnir viðskiptavina
"Atvik er gott kerfi til að halda utan um allar atvikaskráningar sveitarfélagsins. Hafnarfjarðarbær er með marga starfsmenn og er mjög mikilvægt að geta haldið utan um og verið með góða yfirsýn í öryggismálum. Við höfum notað kerfið síðan 2021 og átt mjög gott samstarf og alltaf verið tekið vel í ábendingar frá okkur um framþróun á kerfinu."
Íris Ósk Bjarnadóttir
"ATVIK hefur styrkt öryggis- og gæðamenningu sveitarfélagsins með samræmdri skráningu, bættri yfirsýn og markvissri eftirfylgni. Kerfið gerir okkur kleift að skrá atvik og slys á einfaldan hátt, greina áhættur, læra af reynslu og tryggja stöðugar umbætur í starfseminni. Helsti ávinningurinn er einfalt og öruggt ferli til að tilkynna atvik og slys, sem sparar tíma og tryggir faglega skráningu."
Íris Gunnarsdóttir
"Eftir að Múlaþing tók upp ATVIK atvikaskráningarkerfi sem hluta af öryggisstjórnun sveitarfélagsins hafa mörg umbótaverkefni orðið til. Til að mynda hefur verið farið í almennar hálkuvarnir og lagfæringar á húsnæði eftir ábendingar þar."
Sigrún Hólm Þórleifsdóttir
“Slysaskráningarkerfið ATVIK heldur kerfisbundið utan um öll atvik sem hafa orðið innan starfseminnar. Það hefur reynst félaginu vel við greiningu á slysum og áhættuþáttum, sem hefur leitt til markvissra fyrirbyggjandi aðgerða sem styrkja öryggismenningu og stuðla að auknu öryggi starfsfólks.”.
Kristjana Björk Magnúsdóttir
“ATVIK er lifandi verkfæri sem hefur fest sig í sessi sem órjúfanlegur hluti af skipulögðu öryggisstarfi innan fyrirtækisins. Vinnslustöðin hefur á undanförnum árum byggt upp öryggismenningu þar sem atvik eru ekki aðeins skráð í ATVIK heldur í kjölfarið greind og nýtt sem grundvöllur til umbóta. Þessi nálgun hefur styrkt öryggisvitund starfsmanna innan fyrirtækisins.”
Lilja Björg Arngrímsdóttir
“Við notum ATVIK-skráningarkerfið í öryggis- og gæðastarfi hjá Skinney-Þinganesi. Kerfið hefur reynst einfalt, áreiðanlegt og gerir okkur kleift að fylgjast betur með atvikum og úrbótum í daglegu starfi. Notendavæn hönnun og góð yfirsýn hjálpa okkur að vinna markvisst að stöðugum umbótum.”
Eik Aradóttir
"ATVIK auðveldar stjórnendum að hafa yfirsýn yfir næstum slys og slys sem verða á vinnustaðnum. Í mælaborðinu er hægt að fylgjast með og bera saman hvað er að gerast á hverjum tíma."
Stefanía I. Sigurðardóttir
"Frábært forrit sem heldur utan um staðreyndir, greinir orsakir og hvetur til fyrirbyggjandi aðgerða. Samherji hefur verið virkur þátttakandi frá upphafi og við erum þakklát fyrir það samstarf og að hafa átt þátt í framþróun kerfisins. ATVIK nýtist vel öllum sem er umhugað um öryggi og heilsu."
Jóhann G. Sævarsson
ATVIK fyrir allar atvinnugreinar
ATVIK er fyrir alla frá litlum til stórra fyrirtækja og sveitarfélaga.
Forvarnasamstarf við tryggingafélög Sérkjör
ATVIK er í samstarfi við tryggingafélög sem bjóða viðskiptavinum sínum hagstæðari kjör við að nýta kerfið og stuðla þannig að auknum forvörnum og öryggisstjórnun í sinni starfsemi.
Verðflokkar eftir starfsmannafjölda
* án afsláttar
* 15% afsláttur
* sérkjör
1 - 5
6 - 20
21 - 50
51+
Algengar spurningar
Nú er í boði að allir notendur noti rafræna auðkenningu við innskráningu. Með því að virkja þennan möguleika geta notendur skráð ábendingar, næstum slys o.fl. hvar sem þeir eru staddir við vinnu sína.
Breytingin felur í sér að:
Hægt er að láta alla notendur auðkenna sig með rafrænum skilríkjum.
- Þessi valmöguleiki er undir Fyrirtæki -> Uppfæra
- Þar er hægt að velja „Allir notendur auðkenna sig með rafrænum skilríkjum“
- Einnig hægt að velja „Leyfa allar ip tölur“
Nýr aðgangur hóps/hlutverk
- Grunn aðgangur
- Hefur bara þau réttindi að skrá atvik.
Undir notendur þá er þeim skipt upp, þ.e. notendum eftir grunn aðgangi og aðrir
- Þessi valmöguleiki gerir það að verkum að allir notendur skrá sig inn með rafrænum skilríkjum.
- Ef viðkomandi símanúmer er ekki til sem notandi í kerfinu verður hann sjálfkrafa stofnaður með upplýsingum sem eru fengnar frá Auðkenni með „Grunn aðgang“ í kerfinu og hefur þá bara réttindi til að skrá atvik.
- Með þessum valmöguleika búum við til færslu í leyfðar IP tölur sem opnar fyrir allar IP tölur.
- Það er alltaf hægt að eyða þessari færslu út og leyfa bara takmarkað mengi af IP tölum eins og áður.
- Notandi sem hefur bara réttindi til að skrá atvik.
- Verða til sjálfkrafa þegar notandi sem er ekki til í kerfinu auðkennir sig með rafrænum skilríkjum.
Fannstu ekki svarið við spurningunni þinni?