Jarðgerðarstöðin Molta innleiddi nýlega hjá sér ATVIK atvikaskráningarkerfið í samstarfi við sérfræðinga Áhættustjórnunar. Með innleiðingu á ATVIK mun Molta auðvelda skráningu atvika, greiningu þeirra og eftirfylgni, og þannig styðja við vinnuvernd starfsmanna og auka öryggi í starfsemi fyrirtækisins.
Molta er smár en öflugur viðskiptavinur okkar, og sýnir vel hvað ATVIK hentar fjölbreyttum fyrirtækjum – bæði hvað varðar starfssvið og fjölda starfsmanna.
Við óskum starfsfólki og stjórnendum Moltu velfarnaðar í notkun á ATVIK og hlökkum til að styðja þau við að efla öryggisstjórnun og forvarnir á vinnustaðnum.