Mosfellsbær tekur ATVIK í notkun

Mosfellsbær tekur ATVIK í notkun

Mosfellsbær hefur nú hafið innleiðingu á atvikaskráningarkerfinu ATVIK, sem styður við markvissa skráningu atvika og stöðugar umbætur í starfsemi sveitarfélagsins.  

Með innleiðingu á ATVIK fær Mosfellsbær öflugt verkfæri til að skrá og vinna með atvik og ábendingar – og er markmiðið að efla öryggi, bæta verklag og skapa sterka umbótamenningu þar sem lærdómur af atvikum nýtist til að gera góða starfsemi enn betri. Þannig verður vinnuumhverfið öruggara og forvarnarstarf styrkist. 

Sveitarfélög gegna mikilvægu hlutverki í þjónustu við íbúa og því skiptir miklu máli að hafa skýrar leiðir til að halda utan um og læra af atvikum, ásamt því að fyrirbyggja frekari atvik á sem öflugastan hátt. Sífellt fleiri sveitarfélög eru að nýta sér stafræna lausn okkar til að einfalda ferla og efla forvarnir á starfsstöðvum sínum og með notkun á ATVIK styður Mosfellsbær við markvissa uppbyggingu og þróun á öryggis- og gæðamálum í starfsemi sinni.

Við hjá Áhættustjórnun fögnum samstarfinu við Mosfellsbæ og hlökkum til að styðja sveitarfélagið í áframhaldandi styrkingu öflugrar umbóta- og öryggismenningar.