Það gleður okkur mikið að Reykjalundur hefur nú hafið innleiðingu á ATVIK atvikaskráningarkerfinu sem hluta af vinnuvernd og öryggisstjórnun í starfsemi sinni. Á frábærum innleiðingarfundi með starfsfólki og stjórnendum var rætt um tilgang og ávinning atvikaskráninga í öryggismálum á vinnustaðnum. Strax kom fram fyrsta tækifærið til að skrá atvik sem sýnir fram á hvað ATVIK mun nýtast starfsmönnum Reykjalundar í fyrirbyggjandi aðgerðum.
Áfram forvarnir hjá Reykjalundi og saman gerum við vinnustaðinn öruggari.
