Í dag fór fram kynningarfundur á vegum Ferðamálastofu þar sem Atvikavaktin var kynnt fyrir aðilum í ferðaþjónustu. Atvikavaktin er miðlægur skráningargrunnur sem heldur utan um slys, óhöpp og atvik í ferðaþjónustu á einfaldan og samræmdan hátt. Markmið verkefnisins er að efla öryggi ferðamanna með markvissri skráningu atvika, aukinni greiningu og bættri yfirsýn yfir áhættu í greininni.
Atvikavaktin er byggð á hugbúnaðinum ATVIK frá Áhættustjórnun og hefur verið þróuð í nánu samstarfi við Ferðamálastofu. Lausnin gerir aðilum í ferðaþjónustu kleift að skrá atvik á einfaldan og samræmdan hátt, með það að markmiði að styðja við forvarnir, lærdóm og öflugri öryggismenningu innan greinarinnar.
„Það er ánægjulegt að sjá Atvikavaktina verða að veruleika í samstarfi við Ferðamálastofu. Hún byggir á áratuga reynslu okkar af atvikaskráningu með ATVIK, og saman höfum við þróað lausn sem er sérsniðin að þörfum íslenskrar ferðaþjónustu,“ segir Gísli Níls Einarsson, framkvæmdastjóri Áhættustjórnunar.
Áhættustjórnun sér um innleiðingu og notendaþjónustu við fyrirtæki sem eru skráð í Atvikavaktina – en beiðni um að skrá fyrirtæki fer fram á vef Ferðamálastofu hér.
