Atvikavaktin fyrir ferðaþjónustufyrirtæki komin vel af stað

Atvikavaktin fyrir ferðaþjónustufyrirtæki komin vel af stað

Nú eru skráningar ferðaþjónustufyrirtækja í Atvikavaktina komnar á fullt, og höfum við þegar sett upp aðgang fyrir nokkur fyrirtæki og eru þau því farin að geta skráð atvik og slys í ferðaþjónustu.

Við hvetjum öll ferðaþjónustufyrirtæki til að kynna sér vel Atvikavaktina á vef Ferðamálastofu og bendum sérstaklega á örnámskeið sem eru í boði fyrir þau sem vilja fá nánari upplýsingar áður en þau skrá sig.